Föstudagspizza Rafns
Föstudagspizzan á heimili heilsugúrúsins Rafns Franklín er gríðarlega vinsæl, dásamlega bragðgóð og með eins góðum hráefnum og hægt er.
Einföld en æðisleg!
Botn:
Deig, helst súrdeig frá Brauð&Co eða Flatey
Álegg:
- Ricotta ostur
- Parma skinka
- Rifinn mozzarella
- Ferskur buffala mozzarella
- Valhnetur
- Fersk basilika
- Hunang
Aðferð:
Fletjið út botn, smyrjið ricotta ost á botninn, setjið parmaskinku yfir, rifinn mozzarella og inn í ofn. Bakið þar til tilbúin. Rífið þá ferskan buffala yfir, myljið valhnetur yfir gróft, setjið svo basiliku ofan á og dreifið hunanginu yfir í lokin.
Njótið og verði ykkur að góðu