Próteinkaffi Ágústu
Dásamlega bragðgóður og saðsamur drykkur sem Ágústa Johnson gerir reglulega. Snilld að græja á morgnana eða kvöldið áður og geyma í ísskápnum til að grípa með sér.
Próteinkaffi Ágústu Johnson
Uppskrift:
Ca. 1/2 dl vatn
1 skeið Foodin súkkulaðiprótein (mæli með, gæða vara)
Tvöfaldur espresso (eða kaffi að vild)
2 tsk hreint kakó
1 tsk möndlusmjör eða hnetusmjör
1 tsk vanilla
1 tsk kanill
1/2 tsk hreint kreatín
Hægt að leika sér með hlutföllin eftir smekk
„Mér finnst mikilvægt að nota hágæða prótein og mæli með Foodin. Ég kaupi eingöngu Ceylon kanil sem er mun hollari kostur. Svo er bara um að gera að leika sér með bragðið eftir smekk.“