Píeta góðgerðartími
Styrktartími í Hreyfingu til styrktar Píeta samtökunum sem verður haldinn fimmtudagskvöldið 18. desember 2025.
🎟️ Skráning fer fram á slóðinni hér fyrir neðan, verð er 3.500 kr. og rennur óskert til Píeta samtakanna: https://pieta.is/product/styrktartimi-i-hreyfingu-fyrir-pieta-3-500-kr/
Lilja Ketils, þjálfari í Hreyfingu og jógakennari, leiðir blandaðan tíma með léttum styrktaræfingum, mjúku flæði og meðvitaðri öndun sem endar á leiddri slökun. Markmiðið er að skapa öruggt og hlýlegt rými þar sem þátttakendur mega mæta eins og þeir eru og læra að mæta eigin líðan af mildi.
Viðburðurinn fer fram í Hreyfingu fimmtudaginn 18. desember næstkomandi kl. 19:45-21:15 í Hreyfingu við Glæsibæ, Álfheimum 74.
Allur ágóði rennur óskertur til Píeta samtakanna og styður ókeypis þjónustu fyrir fólk í sjálfshættu og aðstandendur þeirra.
Skráning hér: https://pieta.is/product/styrktartimi-i-hreyfingu-fyrir-pieta-3-500-kr/