Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Tímatafla

Pop Up - Infra Pilates

Infra Pilates Pop Up með Röggu Sveins - Tími sem byggist á hinu sívinsæla, klassíska Pilates æfingakerfi sem tónar og styrkir allan líkamann og bætir líkamsstöðu og liðleika með höfuð áherslu á að vinna út frá kjarna líkamans.

Infra Pilates æfingakerfið er blandað með aðeins kraftmeiri æfingum inn á milli til að hækka púls og auka þol. Áhersla er lögð á góða líkamsbeitingu og hver og einn fylgir sinni getu til að halda góðri tækni í æfingunum. 

Mikið er lagt upp úr styrkingu kjarnavöðva (kvið-, bak-, grindarbotns- og rassvöðva).

Mantra: Sterkur, heilbrigður líkami með góðan liðleika og hreyfigetu.


ATH. Nauðsynlegt að mæta með stórt handklæði eða eigin jógadýnu.

Hreyfing - Vatnsflaska

Manduka Jógahandklæði - Marglit