Foodin mysuprótein vanilla 650gr.
Próteinið frá FOODIN er hágæða Finnskt mysuprótein sem inniheldur engin aukaefni, sykur né gervisætuefni. Hægt er að velja á milli 3 bragðtegunda. Vanillu og súkkulaði innihalda aðeins 3 innihaldsefni og svo er einnig hægt að versla bragðlausa tegund sem inniheldur einungis hreint mysuprótein.
Vanillupróteinið er til dæmis frábær viðbót í próteinpönnuköku bakstur! Próteinið er bragðbætt með hreinni vanillu frá Madagaskar og náttúrulegri stevíu.



Ítarlegri upplýsingar um vöru
Mysuprótein hefur fullkominn amínósýruprófíl, sem inniheldur allar lífsnauðsynlegar amínósýrur. Kasein og latósi hafa verið brotin niður úr próteininu, sem gerir það auðveldara fyrir meltingu. Próteinið hentar einstaklega vel í hristinga, bakstur og það er einnig virkilega bragðgott eitt og sér út í vatn eða mjólk.
Vanillupróteinið er bragbætt með hreinni vanillu frá Madagaskar og náttúrulegri stevíu
Innihald: Mysuprótein (Finnland), vanillu extrakt (Madagaskar), Stevía (Kína)