Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Tímatafla

Hjólaþjálfun

16. febrúar
12 vikur
45.990 kr. 3.833 kr. á viku
89.990 kr. 7.499 kr. á viku
Netgíró

Hjólaþjálfun með Ágústu Eddu og Eyjólfi Guðgeirs - margverðlaunuðum afrekshjólurum!

Markmiðið er að komast í þitt besta hjólaform sem nýtist til heilsubótar og/eða til að geta tekið þátt í hjólreiðaviðburðum. Á námskeiðinu verður áherslan á að komast í gott grunnform og læra að beita sér rétt á hjólinu. Æfingarnar henta jafnt nýliðum sem keppnisfólki þar sem auðvelt er að aðlaga æfingar innandyra að þörfum allra.

Stöðumat verður á tímabilinu til að setja sér markmið og sjá framfarir. Í tímunum er notast við nýjustu tækni vatta og púlsmæla sem gera æfingarnar mun markvissari og skemmtilegri. Þjálfarar miðla af áralangri reynslu um hjólreiðar og keppnisreynslu.

Þátttakendur þurfa engan sérstakan bakgrunn bara góða skapið og vilja til að komast í betra hjólaform.



Innifalið:

  • Hjólaþjálfun 2x í viku
  • Auka 15 mín. kjarnaþjálfun og teygjur eftir hvern hjólatíma
  • 90 mínútna hjólatími 1. sunnudag hvers mánaðar kl. 10:40
  • Aðgangur að lokaðri Facebooksíðu hjólahópsins
  • Aðgangur að Myzone púlsmælakerfi
  • Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
  • Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum 
  • Aðgangur að útiaðstöðu- jarðsjávarpotti og gufuböðum 

    Minnum á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.

    **ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.

HJ1

þriðjudagur
kl. 09:00-10:00
Salur 2
þriðjudagur
kl. 07:10-08:10
Salur 3
fimmtudagur
kl. 09:00-10:00
Salur 2
fimmtudagur
kl. 07:10-08:10
Salur 3
Námskeið er hafið.

HJ2

þriðjudagur
kl. 12:00-13:00
Salur 3
fimmtudagur
kl. 12:00-13:00
Salur 3
Námskeið er hafið.