Styrkur og trigger point

Markmið námskeiðsins er að styrkja sig og að geta hreyft sig eðlilega án þess að hafa áhyggjur af meiðslum. Unnið er í 28-32° innrauðum hita með teygjur, styrktaræfingar með lóðum, bjöllum og eigin líkamsþyngd.
Tímarnir henta öllum þeim sem vilja auka styrk og hreyfigetu ásamt því að bæta liðleika, jafnvægi og líkamstöðu.
Í Triggerpoint æfingum er unnið með nuddrúllur og nuddbolta til að ná frekari vöðvaslökun og losa um stífa vöðva. Unnið er markvisst með ákveðna punkta í líkamanum sem stuðlar að minni bólgum, krónískum verkjum, aukinni hreyfigetu, liðleika og vellíðan.
ATH! Þátttakendur mæta með sína eigin nuddbolta, við mælum með 2x eins boltum (fást í móttöku Hreyfingar, Plús boltar) og stórt jógahandklæði.
Sjá Plús boltana hér:
https://www.hreyfing.is/vorur/nuddboltar-litlir/
https://www.hreyfing.is/vorur/nuddboltar-storir/
Rannsóknir sýna fram á fjölmarga kosti þess að æfa í innrauðum hita eins og aukinn liðleika, aukið blóðflæði, eiturefnalosun með meiri svita og aukinni hitaeiningabrennslu o.fl.
Sjá nánar hér!
ATH. Nauðsynlegt að mæta með stórt handklæði eða eigin jógadýnu.
Í þessum tíma eru þátttakendur ekki í skóm. Einnig er nauðsynlegt að mæta með jóga handklæði, stórt handklæði eða eigin dýnu.

Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útiaðstöðu með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum
Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.
„Guðný er bara best! Hún veit hvað hún er að gera og tímarnir mynda góða heild. Ég sef eins og ungbarn eftir æfingar. Herdís er mjög fagleg og passaði vel að allir þátttakendur gerðu æfingarnar rétt. Þar sem hún er mjög vandvirk og leggur mikið upp úr því að útskýra allar æfingar vel.“