Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Tímatafla

Pilates Láru

8. apríl
6 vikur
22.990 kr. 3.832 kr. á viku
44.990 kr. 7.498 kr. á viku
Netgíró

Pilates æfingakerfið getur raunverulega breytt lífi þínu og líðan með reglulegri ástundun. Í heitum sal (30°) nær líkaminn dýpri vöðvavinnu, auknum liðleika, auk þess sem þú svitnar vel sem hefur góð og mikilvæg hreinsunar áhrif. Pilates er endurnærandi æfingakerfi fyrir líkama og sál.

Með markvissri öndun, réttri stöðu á hryggjarsúlu og mjaðmagrind nærð þú nýjum víddum í árangri þínum við æfingar og í raun öllum þínum daglegu hreyfingum og athöfnum. Þú lærir að stjórna hreyfingum þínum svo það stuðli að betri líkamsstöðu. Gæði hreyfinganna eru í lykilhlutverki í Pilates fremur en fjöldi endurtekninga.

Þú þjálfar sterka kjarnavöðva.

Pilates æfingakerfið byggist á að styrkja djúpu kjarnavöðvar líkamans, vöðvana sem eru næst hryggnum.  Þú lærir tækni við að þjálfa flata kviðvöðva og sterkt bak ásamt því að þjálfa sterka vöðva á sama tíma og þú eykur liðleika.

Í pilates æfingum er lögð höfuðáhersla á að styrkja og lengja vöðva með áherslu á að auka teygjanleika vöðvanna og hreyfisvið liðamóta. Líkami með jafnvægi á milli styrks og liðleika er síður líklegur til að glíma við álagsmeiðsli.

Pilates æfingakerfi er milt og gott fyrir líkamann en á sama tíma krefjandi og skilar frábærum árangri.  Það er ekki að ástæðulausu að í hátt í heila öld hafa frægustu dansarar heims stundað Pilates æfingakerfið. Það varð samstundis vinsælt á meðal dansara  þegar Joseph Pilates höfundur æfingakerfisins og kona hans Clara hófu að bjóða upp á pilates æfingar sem  þjálfun og endurhæfingu fyrir dansara í New York árið 1925. 

Prófaðu þetta einstaka æfingakerfi, losaðu um streitu, verki og stífleika og lærðu að beita líkama þínum auðveldlega og með afslappaðri hætti. Pilates hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum til að styrkja kjarnavöðvana (bak, mitti og kvið) og endurbyggja jafnvægi líkamans með ýmsum vel uppbyggðum æfingum sem eru í senn líkamsvænar og krefjandi.

*Í þessum tíma eru þátttakendur ekki í skóm. Einnig er nauðsynlegt að mæta með jóga handklæði, stórt handklæði eða eigin dýnu. 

Rannsóknir sýna fram á fjölmarga kosti þess að æfa í innrauðum hita eins og aukinn liðleika, aukið blóðflæði, eiturefnalosun með meiri svita og aukinni hitaeiningabrennslu o.fl. 
Sjá nánar hér!


Innifalið:

  • Þjálfun 2x í viku heitum sal (30°)
  • Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
  • Aðgangur að Heilsusíðum Hreyfingar
  • Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
  • Aðgangur að útiaðstöðu- jarðsjávarpotti og gufuböðum 


    Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.

    **ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.

 

PL1

mánudagur
kl. 17:30-18:30
Salur 1
miðvikudagur
kl. 17:30-18:30
Salur 1
Námskeið er hafið.