Chili hvítlauksrækjur
Viðvörun: Þótt þessi aðalréttur sé einstaklega ljúffengur er hvítlauks + chili blandan kannski ekki það sem þið ættuð að borða ef þið eruð að fara á stefnumót. Bragðið er kröftugt og hefur tilhneigingu til að loða við varirnar.
Það sem til þarf:
- 3 hvítlauksgeirar
- 1 rautt chili aldin, grófsaxað
- 1/2 sítróna, skorin í þunna báta
- 450g hráar tígrisrækjur, skelflettar
- Lófafylli af ítalskri steinselju, blöðin tínd af og grófsöxuð
- Strengjabaunir og gott brauð til að bera fram með (má sleppa)
- 3 msk ólífuolía
- Salt og pipar
Svona er þetta gert:
- Hellið ólífuolíunni á stóra pönnu og setjið hana á hellu við meðalhita. Bætið sözuðum hvítlauk og ruaður chili-aldin á pönnuna og steikið í 1 1/2 mínútu eða þar til þetta er farið að mýkjast.
- Bætið sítrónubátunum og rækjuum á pönnuna, steikið í um 3 mínútur og hrærið nær stöðugt á meðan, þar til rækjurnar eru orðnar bleikar og eldaðar í gegn. Kryddið með salti og pipar og hrærið steinseljunni saman við.
- Berið. e.t.v. fram með gufusopnum strengjabaunum og kannski góðu brauði til að þyrrka upp gómsætt soðið.
Magn: 2 skammtar
Undirbúningstími: 5 mínútur
Eldunartími alls: 5 mínútur
Glútenlaust (ef brauðinu er sleppt)
Uppskriftin er úr bókinni Fjórar vikur fjögur ráð eftir Glúkósagðjuna Jessie Inchauspe, Bókin fæst í vefverslun Hreyfingar