Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Tímatafla
Til baka

BL+ Endurnýjun (30 mín)

Fræðsla

BL+ Endurnýjun er fljótleg en öflug andlitsmeðferð. Aqua Peel tæki er notað þar sem hljóðbylgjur djúphreinsa húðina á mildan en áhrifaríkan hátt. Andlitsmeðferðinni er ætlað að fjarlægja óhreinindi, dauðar húðfrumur og auka blóðflæði húðarinnar til að hámarka upptöku virkra efna BL+ húðvörulínunnar.
30 mínútna andlitsmeðferð sem endurnýjar, dregur úr fínum línum, bætir áferð og ásýnd húðar.

 

BL+ Endurnýjun felur í sér: 

  • Hreinsun 
  • Djúphreinsandi maska
  • Aqua Peel endurnýjun  
  • Maska sem valinn er eftir húðgerð
  • BL+ krem og serum sem valin eru eftir húðgerð 

 

VIÐ HVERJU MÁ BÚAST         

Í BL+ andlitsmeðferðunum eru notaðar húðvörur frá Blue Lagoon Skincare. Þær  byggja á einstökum lækningarmætti Bláa Lónsins og lífvirkum innihaldsefnum þess; jarðsjó, kísil, örþörungum ásamt hinu byltingarkennda innihaldsefni BL+ COMPLEX. BL+ COMPLEX  sameinar örþörunga og kísil Bláa Lónsins í háþróuðu flutningskerfi sem er hannað til að koma þeim djúpt niður í húðlögin og hámarka virkni þeirra. BL+ COMPLEX vinnur gegn öldrun húðar með því að vernda kollagenbirgðir, örva nýmyndun kollagens og styrkja náttúrulegt varnarlag húðar. BL+ COMPLEX er einstakt innihaldsefni á heimsvísu sem einungis er að finna í BL+ vörulínunni þar sem við pörum hann saman við önnur virk innihaldsefni.


Til að fræðast meira um BL+ COMPLEX og vörurnar sem við notum í andlitsmeðferðum okkar er tilvalið að, heimsækja netverslun okkar.

 

Bókaðu þinn tíma í BL+ Endurnýjun (30 mín) hér

NÝTT BL+ The Cream Light

Frá 8.900 kr.

BL+ Eye Serum

17.900 kr.

BL+ The Serum

Frá 17.900 kr.

BL+ eye cream

Frá 8.900 kr.

BL+ The Cream

Frá 8.900 kr.

BL+ Retinol Cream 0,3%

16.900 kr.

Silica mud mask

Frá 5.900 kr.