Fara yfir á efnissvæði
Gerast meðlimur
Mínar síður
Tímatafla

Fanney Guðmundsdóttir

Fanney Þorbjörg er Laugardalskona í húð og hár og íþróttir hafa fylgt henni frá unga aldri. Hún er fyrrverandi landsliðskona á skíðum og spilaði einnig með meistaraflokki Þróttar, þannig að hreyfing og íþróttir hafa lengi verið stór hluti af hennar lífi.

Í dag eru það hlaupin sem eiga hug hennar allan þegar hún er ekki í vinnu eða með fjölskyldunni. Síðustu ár hefur hún sérstaklega heillast af fjallahlaupum, þó hún láti sig reglulega hafa það að skipta fjöllunum út fyrir malbikið.

Það sem Fanney elskar mest við þjálfun er að hvetja fólk áfram, fylgjast með framförunum og sjá augnablikið þegar fólk áttar sig á því að það getur meira en það hélt. Í tímunum hennar má því búast við góðri orku, hvatningu, jákvæðu andrúmslofti og að sjálfsögðu góðri tónlist!

Lesa meira

Námskeið með Fanney Guðmundsdóttir

Skillrun Bootcamp

Skillrun Bootcamp

Byrjaði 21. september

Aðrir kennarar