Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Tímatafla

Rósa Ágústsdóttir

Rósa rekur eigið fyrirtæki, ásamt því að kenna opna hóptíma í Hreyfingu. Hún stundaði áhaldafimleika frá unga aldri, var í sigursveit Gerplu í hópfimleikum og margfaldur meistari í keppnisþolfimi. Hún starfaði einnig sem yfirþjálfari í Björk og sat í dómarasætinu til margra ára í greininni.

Í Kanada fór Rósa alfarið að kenna hóptíma í Atlantic Fitness Center, tók þátt í sjónvarpsþáttum fyrir Imotion Fitness og sótti jóganámskeið meðal annars hjá Beryl Bender Birch stofnanda og guru Power Yoga. Þekking og áralöng reynsla einkennir tímana hennar, sem þykja skemmtilegir, kröftugir og endurnærandi.

Rósa telur mikilvægt að vera jákvæð, mæta sjálfum sér af æðruleysi og stunda fjölbreytta hreyfingu svo maður gefist ekki upp enda stundar hún útihlaup og hjólreiðar allt árið um kring og nýtur sín í allskonar fjallabrölti.

Heilbrigður lífsstíll sem og fjölbreytt hreyfing bæði úti og inni í skemmtilegum félagsskap telur hún vera lykilinn að góðri heilsu.

Lesa meira

Tímar með Rósa Ágústsdóttir

Hot Yoga

Hot Yoga - jógastöður eru iðkaðar í 36-38° hita.

  • Mjúkur
Skoða nánar

Hot Fitness

Alhliða og krefjandi æfingakerfi unnið í 34° heitum sal.

  • Mjúkur
Skoða nánar

Aðrir kennarar

Blóðsykursbyltingin
5.990 kr
+
-